BragiG

Dagar í lífi...

Færslur: 2007 Júlí

11.07.2007 02:21

Annir

Það er alveg nóg að gera takk, svosum ekkert að kvarta en væri samt alveg til í að eyða eins og einum degi á nærbolnum á svölunum með ísblóm og skeið í hendi á meðan sól skín í heiði. 
Er þessa dagana að breyta til í útvarpinu og hættur að spila á þessum ósigrandi heimavelli tónlistarþáttanna sem ég hef haft ómælda ánægju af síðustu árin og kominn í dægurmálin í Reykjavík Síðdegis. Þetta er reyndar bara að gerast hægt og rólega fram á haustið en þá verð ég, ef allt gengur vel, formlega kynntur sem nýr liðsmaður og mun ég leika í treyju númer 3 ásamt þeim Þorgeiri og Kristófer. Ég á nú eftir að ræða þetta betur síðar, en endilega hlustið.

Skrapp í gærkvöldi á tónleika í höllinni. Áttaði mig á því í dyrinni að ég er ómeðvitað búinn að bíða eftir því að sjá Toto á sviði alveg síðan ég heyrði lagið Africa í útvarpinu fyrir 25 árum síðan. Bráðþroskað tónlistareyrað skynjaði þá strax hversu mikil gæði voru þarna á ferðinni og það sem vantaði var að ég sæi það með eigin augum til að trúa.
Reyndar voru stúkumiðarnir sem mér var úthlutað töluvert nær áhaldageymslunni en sviðinu og gæti ég trúað að ég hefði litið ögn pöddsaralegar út í augum boðsgestsins sem komst ekki en mér hefði þótt þægilegt, svo ég ákvað að koma mér fyrir eins og turn á miðju gólfi, sem reyndist mikið gæfuspor. 
Á sviðinu voru fimm meistarar að spila sig rænulausa og þegar Steve Lukater var um það bil að klára 800 kílóvattstunda gítarsóló sagði Hössi sem var með mér "Mér sýnist hann vera að komast í gírinn"..
Að fara á tónleika er með því skemmtilegasta sem ég geri, reyndar hef ég séð marga slappa um daganna en þessir fá toppeinkunn hjá mér. Svo er það Chris Cornell í haust, uss!



Stuðkveðjur
BG
  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 10061
Samtals gestir: 5031
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:55:45

Um mig

Nafn:

Bragi Guðmundsson

Afmælisdagur:

28. janúar

Heimilisfang:

101

Staðsetning:

Reykjavík

Önnur vefsíða:

bylgjan.is

Um:

Hnarreistur, bilbreiddur, rótgóður og kjörtenntur dreifbýlismaður.

Tenglar